meira um lífið í sveitinni
Við Snæþór rúlluðum þessu upp í kvöld. Djöfull vorum við flottir. Alma átti samt stórgóða innkomu líka. Húrra fyrir okkur.
Við Snæþór rúlluðum þessu upp í kvöld. Djöfull vorum við flottir. Alma átti samt stórgóða innkomu líka. Húrra fyrir okkur.

Þessi mynd er ágætis dæmi um hvernig lífið er hérna á Laugarvatni.
… en að þjónusta kurteist, þakklátt fólk.
Hérna á Laugarvatni er yndslegt að vera. Vinnufélagarnir snillingar allir sem einn og umhverfið skemmir ekki fyrir. Ég get svarið að veitingasalurinn á Hótel Eddu ÍKÍ er með einu fallegasta útsýni á landinu yfir Laugarvatnið sjálft og með drottninguna Heklu við sjónarrönd.
Ég mæli með Laugarvatni.

Ég er kominn á laugarvatn og byrjaður að undirbúa sumarið hér. Þetta leggst vel í mig.
Kjartan: Ég ætla að verða svona Steve Jobs gaur þegar ég verð stór.
Lovísa: Meinarðu Boy George?
Kjartan: Steve Jobs.
Það er ekki laust við að ég hlakki til haustsins næsta, auðvitað verður gaman í sumar en haustið er spennandi. Ástæðan er jú sú að að ég er að æfa fyrir leikrit sem verður frumsýnt í September og mér lýst svaka vel á. Svo er þetta gaman líka og skemmtilegt fólk sem ég er að vinna með. Húrra fyrir því.
Ég geng bara um með bros á vör þessa dagana. Það er gaman að lífinu.
Svo sá ég þennan á Laugaveginum, eða þessa?

obamarama, obamarama, obamarama.
mér finnst gaman að skrifa og segja obamarama.